14apríl
Við erum flutt , vá hvað er leiðinlegt að flytja...
Ég er bara orðin allt of gömul fyrir svona vitleysu. Miðað við aldur ætti ég að vera búin að mennta mig, ráðsett, slitin gömul kona, vel þybbin og kringlótt með risastór brjóst, berfætt í kjól með rjóðar kinnar að baka brauð og bollur, komin með 10 krakka, hús með garði, frúarbíl - "spacewagon", 2 geitur útí garð, hund sem stingur af við fyrsta tækifæri og kött sem mígur í rúmið mitt......
En lífið er ekkert ævintýri, í staðin er ég bara ungleg, grönn og spengileg, spræk og skemmtileg, fæ frið til að sofa út, panta mér pizzu þegar ég vil, ekki með neinn garð og rúmið mitt er ekki út-migið. Keyri um á glæsikerru og er atvinnulaus
ahahahahhahahaha almáttugur, ef allar óskir gætu nú bara orðið að veruleika.
Ég ætlaði að taka myndir af flutningunum en var svo búin að pakka myndavélinni niður einhversstaðar..snillingur.. En ég tók nokkrar myndir um helgina, set þær í apríl möppuna.
Fengum gesti á sunnudag og það var meira eða minna bara setið útá svölum. Svoleiðis glampandi sól og steikjandi hiti, fór í 18 gráður á laugardaginn og ekki var það minni hiti á sunnudag og mánudag. Lítur allt út fyrir að það verði heitt í dag líka.
Keyptum gardínuefni fyrir svefnherbergið og skvísan ætlar að sauma sjálf gardínur, já hún er fjölhæf þessi elska ég. Heppin að mútta gaf mér gömlu saumavélina sína um árið.
Jaja ég læt heyra betur fra okkur seinna, hef ekki tíma í svona bloggerí núna. Nóg að gera, þarf að þýða ferilskrána mína yfir á dönsku og leita mér að lærlingsplássi.
Adios..